Kristinn Pálsson (á heflinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 09:54 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 09:54 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Pálsson er fæddur 4. nóvember 1938. Eyjamenn þekkja ef til vill betur til hans undir nafninu Kiddi á heflinum en það er hann kallaður vegna þess að aðalstarf hans frá upphafi var malarnám og grjótmulningur. Malarnám skilur eftir sig sár en þau hefur Kiddi viljað græða á einhvern hátt og hans aðferð við það er að útbúa grjótskúlptúra og efnið sækir hann í nágrennið.

Árið 1952 byrjaði Kiddi í malarnáminu inn í Herjólfsdal. Fyrsta verkefnið var að mala grjót í hús Útvegsbankans, síðar Íslandsbanka og enn síðar Glitnis, sem var verið að byggja í Eyjum. Auk þess að mala grjót var hann á veghefli bæjarins og við hann er Kiddi kenndur.

Á yngri árum var Kiddi í myndlistarskóla hjá Páli Steingrímssyni. Árið 1995 byrjaði Kiddi að reisa grjótskúlptúra. Þekktastur þeirra er líklega hin 4 metra háa Auróra, sem horfir til hafs á brúninni vestan við Viðlagafjöru á Nýja hrauninu.


Heimildir

  • Ómar Garðarsson, Morgunblaðið 18. maí 2006.