Johan Nicolai Abel

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:07 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2006 kl. 15:07 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Johan Nikolai Abel var sýslumaður Vestmannaeyinga frá 1821 til 1839 og svo aftur frá 1840 til 1852. Johan var danskur að ætt. Hann hafði tekið hið danska embættispróf í lögum. Johan var settur sýslumaður í Vestur-Skaftafellssýslu 1820 en fékk sama ár konungsveitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu. Þann 10. júní 1847 veitti konungur Johani kammerráðsnafnbót. Abel sýslumaður var hár vexti, karlmannlegur og talinn hið mesta hraustmenni en ekki mikill lærdómsmaður.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.