Jón Arason prestur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 15:59 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2006 kl. 15:59 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Arason var prestur að Ofanleiti í Vestmannaeyjum frá 1809 til 1810. Hann var fæddur að Stað í Grindavík árið 1777. Foreldrar hans voru séra Ari Guðlaugsson, prestur að Ofanleiti, og Kristín Grímsdóttir. Jón varð stúdent frá Reykjavíkurskóla árið 1801 og vígðist aðstoðarprestur föður síns árið 1805, en fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakalli árið 1809, 32 ára gamall.

Hann var hann mjög vel látinn af sóknarfólki sínu. Jón þjónaði prestakallinu aðeins í rúmt ár. Hann varð bráðkvaddur 10. sept 1810, einungis 33 ára að aldri. Kona hans var Þorbjörg Pétursdóttir frá Gjábakka í Vestmannaeyjum Vilhjálmssonar. Þrátt fyrir stutt æviskeið Jóns eignuðust þau hjónin fimm börn en aðeins tvö þeirra komust upp.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.