Ólafur Vigfússon (Gíslholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:44 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:44 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Vigfússon, Gíslholti, fæddist undir Eyjafjöllum 21. ágúst 1891 og lést 15. maí 1974. Árið 1911 fór Ólafur til Vestmannaeyja og árið 1920 hóf hann formennsku á Heklu. Eftir það var Ólafur með ýmsa báta, þar á meðal Skallagrím, Óskar og Skúla fógeta. Formennsku gegndi hann allt til ársins 1950.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Ólaf:

Ólaf á Skúla ölduslark
ægir lítt né tefur,
við sædrif, vos og veðrahark,
vanist löngum hefur.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.