Leikfélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 08:49 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2006 kl. 08:49 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd frá uppfærslu hjá Leikfélagi Vestmannaeyja snemma á 20. öldinni.

Saga leiklistar frá 1852-1909

Árið 1852 var sýndur sjónleikur í Vestmannaeyjum og mun það vera í fyrsta sinn sem sýning var í Vestmannaeyjum. Það sama ár greiða einhverjir leikendur ágóðann af leiksýningu til bæjarsjóðs. Ekki er vitað hverjir voru leikendur né hvaða verk var sýnt en vel getur verið að leikritið hafi verið eftir Sigurð Pétursson skáld en það getur allt eins hafa verið danskt og leikið á dönsku.

Árið 1852 flytur Séra Brynjólfur Jónsson til Vestmannaeyja og býr í Nöjsomhed ásamt konu sinni og dóttur. Líklegt þykir að Brynjólfur hafi komið upp leiksýningum í samráði við fleiri aðila. Brynjólfur var menningarfrömuður og talið er fullvíst að hann hafi komið upp leikritunu "Narfi" eftir Sigurð Pétursson árið 1860-1861. Talið er að á meðal leikenda hafi verið Kristján Magnússon verslunarstjóri, Ingimundur Jónsson á Gjábakka, Gísli Lárusson og fleiri.

Árið 1864 var sett upp leikritið "Hrjólfur" og talið er að leikendur hafi verið þeir sömu og í Narfa. Árin 1886-1888 var leikritið Hrjólfur sett upp í Kumbalda. Á meðal leikenda þá voru Árni Filippusson sem lék Hrjólf, Sigurður Sigurfinnsson, Gísli Lárusson, Einar Bjarnason og fleiri.

Þessar tvær sýningar, það er Narfi og Hrjólfur voru sýndar annað veifið fram til ársins 1890 eða 1891. Árið 1893 var "Tólfkóngavitið" leikið hér og ári síðar "Hinn þriðji" sem var byggt upp á söngvum og tónlist. Á meðal þeirra sem stóðu að baki þessum sýningum voru Oddur Árnason, Guðlaugur Hansson Litlabæ, Guðrún Runólfsdóttir og Sigurbjörg R. Pétursdóttir. Var sagt að söng þeirra Guðrúnar og Sigurbjargar hafi verið minnst lengi sem frábærlega góðum.

Um aldamótin 1900 var Skugga-Sveinn settur upp í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að miðaverð hefði hækkað upp í 1,50 krónur sem þótti hátt, vakti það leikrit mikla ánægju á meðal bæjarbúa sem sumir sáu það að minnsta kosti tvisvar. Á meðal leikenda voru Jón Filippusson Dalbæ, Jón Einarsson Garðsstöðum, Guðjón Guðjónsson Sjólyst, Sigríður Jónsdóttir Garðsstöðum og fleiri.

Saga leiklistar í Vestmannaeyjum frá þessum tíma er að mestu leyti glötuð með bókum og skjölum félagsins en þó má styðjast við heimildir úr bæjarblöðum sem bæta skaðann að nokkru leyti.

Leikfélagið var stofnað 22. ágúst 1910.


Heimildir

  • Árni Árnason. Blik ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1962