Guðjón Valdason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:14 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:14 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Valdason, Dyrhólum, fæddist 4. október 1893 að Steinum undir Eyjafjöllum. Guðjón fór 14 ára gamall til Vestmannaeyja með móður sinni og stjúpföður, Elínu Pétursdóttur og Bergi Jónssyni. Árið 1925 byrjar Guðjón formennsku á Garðari I. Eftir það er Guðjón meðal annars með Gottu, Von og Kap sem hann var með til ársins 1955 eða í 21 vertíð. Þá kaupir Guðjón Kap II og er með hann til 1960 þegar hann hættir formennsku.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.