Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005/Ólíkar ferjur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. mars 2017 kl. 13:33 eftir Halla1 (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. mars 2017 kl. 13:33 eftir Halla1 (spjall | framlög) (Ný síða: Ólíkar ferjur Vilm. Víðir Sigurðsson, faðir séra Þorvaldar sóknarprests við Landakirkju, sendi ritstjóra með-fylgjandi myndir fyrir skömmu. I bréfi sem fylgir segir Ví...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólíkar ferjur Vilm. Víðir Sigurðsson, faðir séra Þorvaldar sóknarprests við Landakirkju, sendi ritstjóra með-fylgjandi myndir fyrir skömmu. I bréfi sem fylgir segir Víðir m.a.: „Við Jóhanna fengum tækifæri til þess að heim-sækja Mabútó, höfuðborg Mósambik, í nóvember og stuttu síðar þurftum við að skreppa til Islands og heimsóttum þá að sjálfsögðu Eyjarnar og fólkið okkar þar. í Mósambik fórum við í smá ferðalag þar sem við þurftum að taka ferju yfir tiltölulega mjótt sund og viku síðar sigldum við með Herjólfi til Vestmannaeyja. Mér datt í hug að setja þessar tvær ferjur saman á blað og senda þér til gamans. Að vísu er ekki saman að jafna siglingaleiðunum en það er langt á milli skipanna. Eg er hræddur um að Sigmar (Sigmar Þór Sveinbjörnsson) hefði sagt eitthvað ef hann hefði átt að skoða þá minni." Vilm. Víðir var kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavfk frá 1968 til 2000 en síðan hefur hann kennt siglingafræði og skyld fög í Namibíu. Faðir Víðis og afi Þorvaldar okkar var Sigurður Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður, á Víði SU frá Eskifirði. Um og upp úr 1960 var hann hér í Eyjum með Víði á nokkrum vetrarvertíðum og fiskaði mikið. Ymist var hann kallaður Siggi á Víði eða Siggi á hvítu peysunni sem hann var þekktur af. Víðir SU var alltaf auðþekktur í flotanum vegna góðrar umhirðu svo um var talað, útgerðarmanni og skipstjóra til sóma. Hinn 16. júní n.k. hefði Sigurður orðið 100 ára.