Guðrún Sigríður Oddgeirsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 17:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Sigríður Oddgeirsdóttir''' húsfreyja frá Ofanleiti fæddist 11. júní 1878 að Felli í Mýrdal og lést 3. maí 1968 á Akranesi.<br> Foreldrar hennar voru sr....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Sigríður Oddgeirsdóttir húsfreyja frá Ofanleiti fæddist 11. júní 1878 að Felli í Mýrdal og lést 3. maí 1968 á Akranesi.
Foreldrar hennar voru sr. Oddgeir Þórðarson Guðmundsen prestur, síðast að Ofanleiti, f. 11. ágúst 1849, d. 2. janúar 1924, og kona hans Anna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 9. júní 1848, d. 2. desember 1919.

Guðrún Sigríður var með foreldrum sínum á Felli í Mýrdal til ársins 1882, fluttist þá með þeim að Miklaholti í Hnappadalssýslu, var með þeim í Kálfholti í Holtum 1886-1889 og fluttist með þeim að Ofanleiti 1890.
Hún var með foreldrum sínum að Ofanleiti 1901.
Jóhanna Andrea systir hennar giftist Magnúsi Jónssyni sýslumanni 1901, en lést 1906. Guðrún Sigríður var bústýra hjá sýslumanni 1906 og giftist honum 1908.
Þau fluttust til Hafnarfjarðar 1909 þar sem Magnús var bæjarfógeti.
Guðrún Sigríður ól 5 börn og varð stjúpmóðir barna systur sinnar. Þau Magnús misstu tvö börn á 1. ári.
Magnús lést 1947. Guðrún Sigríður bjó eftir hann í Reykjavík, en var að síðustu hjá dóttur sinni á Akranesi og þar dó hún 1968.

ctr


Guðrún Sigríður Oddgeirsdóttir, Magnús Jónsson og börn.
Frá vinstri: Guðrún (dóttir Jóhönnu Andreu), Anna, Oddgeir, Baldur Jóhann, Jón (sonur Jóhönnu Andreu).


Maður Guðrúnar Sigríðar, (21. ágúst 1908), var Magnús Jónsson, þá sýslumaður í Eyjum, f. 27. desember 1865, d. 27. desember 1947. Hún var þriðja kona hans.
Börn þeirra:
1. Anna Magnúsdóttir, f. 14. mars 1909 á Hofi, d. 29. maí 1909.
2. Oddgeir Magnússon lögfræðingur, f. 21. ágúst 1910 í Hafnarfirði, d. 2. júní 1962. Hann var ókvæntur og barnlaus.
3. Baldur Jóhann Magnússon lögfræðingur, fulltrúi í Hafnarfirði, f. 7. mars 1912, drukknaði 21. maí 1938. Hann var ókvæntur og barnlaus.
4. Anna Magnúsdóttir síðari, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, f. 23. júní 1913 í Hafnarfirði, d. 27. desember 1982. Maður hennar var Njáll Guðmundsson skólastjóri á Akranesi.
5. Jóhanna Magnúsdóttir, f. 15. desember 1917, d. 12. apríl 1918.
Stjúpbörn Guðrúnar Sigríðar, börn Magnúsar og Jóhönnu Andreu systur hennar voru:
6. Guðrún Magnúsdóttir Tuliníus húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1902 í Godthaab, d. 26. mars 1998.
7. Oddgeir Magnússon, f. 11. október 1903 í Godthaab, d. 21. október 1907.
8. Jón Magnússon stýrimaður, skipstjóri í Hafnarfirði, f. 28. mars 1906, d. 13. febrúar 1983.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.