Guðmundur Oddgeirsson (Ofanleit)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 16:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|150px|''Guðmundur Oddgeirsson. '''Guðmundur Oddgeirsson''' frá Ofanleiti fæddist 28. maí 1876 að Felli í Mýrdal og lést 5. nóvemb...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Oddgeirsson.

Guðmundur Oddgeirsson frá Ofanleiti fæddist 28. maí 1876 að Felli í Mýrdal og lést 5. nóvember 1920 í Buenos Aires í Argentínu.
Foreldrar hans voru sr. Oddgeir Þórðarson Guðmundsen prestur, síðast að Ofanleiti, f. 11. ágúst 1849, d. 2. janúar 1924, og kona hans Anna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 9. júní 1848, d. 2. desember 1919.

Guðmundur var með foreldrum sínum á Felli í Mýrdal til ársins 1882, fluttist þá með þeim að Miklaholti í Hnappadalssýslu, var með þeim í Kálfholti í Holtum 1886-1889 og fluttist með þeim að Ofanleiti 1890, en var skráður 14 ára bókhaldari við verslun á Skúmsstöðum í Stokkseyrarsókn í lok ársins.
Hann var verslunarmaður og leigjandi í Kaupmannshúsinu á Eyrarbakka 1901, dvaldi um skeið í Helsingör, kom þaðan 1909 og var bankaritari í Landsbankanum í Reykjavík 1910.
Guðmundur fluttist til Kaupmannahafnar og var þar stórkaupmaður.
Hann lést 1920 í Suður-Ameríku.

Guðmundur kvæntist danskri konu.
Barn þeirra
1. Eva Oddgeirsson. Hún býr í Danmörku.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Knudsensætt. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.