Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1986/Fyrsta framlag í nætursjónauka

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2016 kl. 17:43 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2016 kl. 17:43 eftir StefánBjörn (spjall | framlög) (Ný síða: <center><big><big>'''Fyrsta framlag í'''</big></big></center> <center><big><big>'''nætursjónauka'''</big></big></center> <center><big><big>'''afhent'''</big></big></center><br> Á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fyrsta framlag í
nætursjónauka
afhent


Á gamlársdag var í Básum afhentur stofnsjóður til kaupa á gleraugum sem gera notanda kleyft að sjá í myrkri og auðvelda alla eftirgrennslan eftir týndu fólki.
Það var Björgunarfélag Vestmannaeyja sem veitti fénu viðtöku, en gefendur eru útgerðir Valdimars Sveinssonar, Glófaxa, Gandís og svo Bergur-Huginn. Auk þeirra verslunin Eyjakjör. Samanlagt gáfu þessir aðilar kr. 55.000,- en það dugir ekki nánda nærri til kaupa á gleraugunum og munu þau kosta um 300.000,-
Þá mun vera í athugun að reyna að efna til samkaupa á svona gleraugum.
Björgunarfélagsmenn báðu um að þakklæti yrði skilað til gefenda.

Þrídrangar eru þvert um horf þá er nú skammt að landi Bráðum fá menn að troða torf og tölta á malbiki og sandi.
(Ort af Brynjólfi Einarssyni um borð í Herjólfi)