Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1996/ Vélstjórnarbraut FÍV 1995-1996

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2015 kl. 21:39 eftir Halla1 (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2015 kl. 21:39 eftir Halla1 (spjall | framlög) (Ný síða: <br> <big><big><center>JÓN INGI SIGURÐSSON</center></big></big> <big><big><big><center>VÉLSTJÓRNARBRAUT FÍV1995-1996</center></big></big></big> Framhaldsskólinn í Vest...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


JÓN INGI SIGURÐSSON


VÉLSTJÓRNARBRAUT FÍV1995-1996


Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, og þar með vélstjórnarbrautin, var settur 1. sept. af skólameistara, Ólafi H. Sigurjónssyni, en kennsla hófst þann 6. sept. Alls voru skráðir 13 nemendur á haustönn bæði á 1. og 2. stig, kennsluvikur haustannar eru 13 og próf í tvær vikur.
Matthías Nóason hefur verið aðalkennari í verklegum greinum þetta skólaár í förföllum Karls Marteinssonar sem hefur átt við þralát veikindi að stríða.
Vorönnin hófst 8. jan. með námskeiði hjá Slysavarnaskólanum, en á vorönn voru skráðir 6 nemendur, allir í 2. stig. Að auki er einn nemandi að Ijúka kjarnagreinum fyrir 3. stig sem er mögulegt að taka hér í heimabyggð og stytta þannig veru í Vélskólanum í Reykjavík.
Ýmsar uppákomur hafa verið í skólanum á þessu skólaári. Þar má nefna að farið var í skoðunarferðir í nokkur skip og báta. T.d var farin ein ferð með Herjólfi þar sem vélstjórar skipsins fóru ýtarlega í gegnum vélbúnað skipsins með verðandi vélstjórum. Þá var einnig farið um borð í Vestmannaey þar sem skoðuð var m.a. ný Ijósavél frá Caterpillar sem er hin fyrsta sinnar tegundar í Evrópu, en vélin er að miklu leyti tölvustýrð. Þann 24. febr. var haldinn dagur „símenntunar", og var skólinn þá opinn gestum til sýnis og fræðslu. Haldnir voru nokkrir fyrirlestrar um ýmis fræði í skólanum. Opin vika var í skólanum 4.-11. mars þar sem nemendur skiptust í nokkra vinnuhópa og störfuðu að ýmsum uppákomum.
Þau tímamót urðu nú í haust að öll starfsemi vélstjórnarbrautar fluttist á neðstu hæð í nýju verknámshúsi sem byggt hefur verið við Framhaldsskólann. Fyrsta skóflustungan að þessu nýja húsnæði var tekin í nóvember 1988 af þáverandi formanni byggingarnefndar, Þorbirni Pálssyni. Fyrri hluta árs 1989 var grunnur og plata steypt, en síðan var byggingin sett í biðstöðu. Sumarið 1994 var síðan haldið áfram með byggingu hússins og það tekið í notkun í september 1995. Við ýmsa þætti, svo sem frágang málmsmíðasalar og niðursetningu á vélum og tækjum, var síðan unnið fram í byrjun árs 1996. Til stendur að vígja þetta húsnæði formlega nú á vormánuðum, og verður húsnæðið þá opið bæjarbúum til sýnis.
Þetta nýja húsnæði er mjög vel tækjum búið. M.a. er í málmsuðusal sex nýjar rafsuðuvélar, í smíðasal er nýr rennibekkur af fullkomnustu gerð, ásamt tveim eldri bekkjum. Þá var keypt stór fræsivél og bandslípivél ásamt ýmsum smáverkfærum. Í vélasal hafa verið settar upp fjórar vélar, þar af er ein ný Caterpillar-vél sem getur skilað 100 kW út af rafal. Þessi vél er tengd við samfösunartöflu og er tengingin þannig að bæði er hægt að tengjast neti bæjarins og keyra inn á skólann.
Með þessari nýju og fullkomnu aðstöðu, sem nú hefur skapast fyrir verknámsdeildir innan skólans, er það von manna að aðsókn megi aukast á næstu árum því að fyrir stað eins og Vestmannaeyjar er mikil þörf fyrir vel menntað fagfólk á sviði vélstjórnar og annarra iðngreina.
Með bestu kveðjum til sjómanna og fjölskyldna þeirra.

Jón Ingi Sigurðsson véltæknifræðingur.