Guðmundur Guðlaugsson frá Sólbrekku

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 15:04 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 15:04 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðlaugsson fæddist 12. júlí 1885. Hann bjó á Faxastíg 21 í nær hálfan fimmta tug, í húsi sem nefnist Sólbrekka. Lífsförunautur Guðmunds var Una Jónsdóttir skáldkona sem lést 29. febrúar 1960. Guðmundur var hæglátur maður og hjálpsemin við aðra var honum í blóð borin.

Árið 1921 kom Guðmundur á vertíð til Vestmannaeyja til að freista gæfunnar. Þar vann hann við aðgerð og keypti fæði hjá Unu Jónsdóttur eins og svo margir aðrir vertíðarmenn í Eyjum á þeim tíma. Tveimur árum seinna fluttist hann til hennar og þar bjuggu þau síðan saman ógift í 37 ár, þar til Una lést.


Heimildir

  • Karl Vignir Þorsteinsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1969.