Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1951/M.b. Sigurfari kominn úr síðustu sjóferðinni

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. ágúst 2015 kl. 09:35 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. ágúst 2015 kl. 09:35 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

M. b. Sigurfari
kominn úr síðustu sjóferðinni

Hinn 13. apríl geysaði hér fárviðri. Margir bátar náðu ekki í höfn um kvöldið en lágu undir eða héldu sjó. Mikill leki kom að m.b. Sigurfara, en þó tókst að komast upp undir Eiðið. Var fyrst hugsað til að hleypa bátnum upp á Eiðið, en frá því var ráðið úr landi og hleypti þá m.b. Ver upp að síðu Sigurfara og tók úr honum mennina, en þá var vélin að stöðvast af sjó. Myndin sýnir, hvar Sigurfarann rak svo upp rétt á eftir. Sú landtaka hefði orðið slæm með menn innanborðs. Báturinn brotnaði í spón.