Ritverk Árna Árnasonar/Guðlaugur Guðjónsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 11:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 11:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Guðlaugur Guðjónsson.
Anna Pálína Sigurðardóttir.

Guðlaugur Guðjónsson trésmíðameistari og forstjóri fæddist 2. júní 1919 og lést 2. júní 2008.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og síðari kona hans, Guðrún Grímsdóttir húsfreyja, f. 10. júní 1888, d. 4. maí 1981.

Kona Guðlaugs var Anna Pálína, f. 30. ágúst 1920, d. 5. desember 2004, Sigurðardóttir.
Börn Guðlaugs og Önnu:
1. Guðjón, f. 4. desember 1940, kvæntur Helgu Sveinbjörnsdóttur.
2. Sigríður, f. 4. maí 1945, gift Sigurgeiri Þór Sigurðssyni.
3. Guðrún, f. 1. febrúar 1953, gift (skildu) Henrý Henrikssyni.
4. Inga Hrönn, f. 4. nóvember 1958, gift Birki Agnarssyni.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Guðlaugur er einn af kunnustu Elliðaeyingum nútímans sem aðrir bræður hans. Hann er rösklega meðalmaður á hæð, fremur grannur að holdafari en herðabreiður, skolhærður, en ljós yfirlitum, fríður sýnum, léttur í skapi, en skapfastur, söngvinn og ræðinn og kátur, góður félagi og traustur að störfum, reglumaður á vín og tóbak, sem má telja nær einstakt nú til dags.
Hann er lipur í hreyfingum, snar og átakadrjúgur, iðjusamur við störf og þrautseigur.
Lífsstarf hans eru smíðar og er hann einn af hluthöfum „H/F Smiður“ hér í bæ.
Guðlaugur hefur stundað veiðar síðan í barnæsku og mest í Elliðaey, enda hennar maður í húð og hár. Hann er sagður góður bjargmaður og talinn til betri veiðimanna nútímans, enda einn af þeim, sem gert hefir sitt til að auka hróður veiðigarpa Elliðaeyjar. Hin síðari árin hefir hann minna gefið sig að veiðum og veldur því atvinna hans.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.