Kristinn Magnússon (Sólvangi)
Kristinn Magnússon, Sólvangi, fæddist á Seyðisfirði 5. maí 1908 og lést 5. október 1984. Árið 1915 fluttist Kristinn til Vestmannaeyja ásamt foreldrum sínum, Magnúsi Jónssyni og Hildi Ólafsdóttur.


Fremri röð frá vinstri: Unnur, Magnús, Sigurbjörg og Rebekka.
Kristinn var kvæntur Helgu Jóhannesdóttur hjúkrunarkonu og eru börn þeirra: Theódóra (látin), Ólafur Magnús hafnarstjóri í Vestmannaeyjum, Jóhannes (látinn), Guðrún og Helgi (látinn).
Kristinn byrjaði sjómennsku árið 1924 en formennsku hóf hann árið 1932 á Pipp. Eftir það er Kristinn meðal annars með Hilding og Gylfa II. Kristinn var formaður í rúmlega 30 ár. Eftir að hann kom í land sá hann um rekstur Verkamannaskýlisins á Básaskersbryggju.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Kristin:
- Karskur á Pipp um kólguskeið
- Kristinn upp þorskinn grefur,
- sveigir ei strax af sinni leið
- né samþykkt öllum gefur.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Kristin:
- Þegar ólgu aldan grett
- örk í fangi rólar,
- svæðið kólgu klýfur nett
- Kiddi á vangi Sólar.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Kristin ég læt á lista
- liða, sem gá til miða.
- Magnússon marling fagnar
- mildingur sá, er Hildings
- hring nýjum brims á bryngi,
- beitir í fiski leitum.
- Stýra kann skatinn skýri
- skrumlaust í hríðar flaumi.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.