Blik 1938, 3. tbl./Forustumenn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 14:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2010 kl. 14:32 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Blik birtir að þessu sinni myndir af tveim helztu forustumönnum stúkunnar „Báru“, þeim séra Jes A. Gíslasyni kennara og Magnúsi Guðmundssyni bónda.
Magnús hefur starfað í „Báru“ samfleytt í 45 ár og síra Jes í 31 ár. Báðir eru þeir fæddir og uppaldir í Eyjum, jafngamlir, fermdir saman (þá aðeins þeir tveir), og starfað hafa þeir saman í sönnum bróðurhug með staðfestu og einlægni fyrir sitt hjartans mál, bindindismálið. Margir ágætir menn og konur hafa hjer lagt hönd á plóginn með þeim, en þeir hafa fastast og lengst staðið og starfað allra Goodtemplara í Eyjum.

Séra Jes A. Gíslason
Séra Jes A. Gíslason
Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum
Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum