Brautarholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:28 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:28 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Brautarholt var portbyggt timburhús, byggt árið 1908 af Jóni Jónssyni frá Dölum, síðar sjúkrahúsráðsmanni, og stóð við Landagötu 3b. Jón var ævinlega kenndur við Brautarholt en hann andaðist í hárri elli og var síðustu æviár sín elsti borgari Vestmannaeyja. Húsið fór undir hraun.

Brautarholt
Börn í garðinum á Brautarholti.

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Gunnar Árnason og Kristín Valtýsdóttir ásamt börnum sínum Árna Þór og Ástu Sigrúnu. Einnig bjuggu í húsinu Helga Tómasdóttir og börn hennar Gunnar Már og Sólveig Eva Hreinsbörn.



Heimildir