Þórir Bergsson (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2024 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2024 kl. 10:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Þórir Bergsson á Þórir Bergsson (kennari))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórir Bergsson kennari fæddist 6. desember 1963 í Eyjum.
Foreldrar hans Bergur Heiðmar Vilhjálmsson frá Heiði á Langanesi, múrari, f. 12. júní 1933, d. 12. maí 2017, og kona hans Kristbjörg Guðrún Kristjánsdóttir frá Kirkjubóli, húsfreyja, verslunarmaður, talsímakona, f. 31. október 1931, d. 15. mars 2018.

Þórir Bergsson.

Þórir var með foreldrum sínum í æsku, á Kirkjubóli og við Landagötu 31. Þórir varð stúdent í MK 1983, lauk íþróttakennaraprófi 1986 og sótti ýmis námskeið hjá íþróttahreyfingunni.
Hann var kennari í MK og Hjallaskóla í Kópavogi frá 1986.
Þórir vann við múrverk 1983 og 1984.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.