Heimagata 25

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2016 kl. 11:35 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2016 kl. 11:35 eftir Inga (spjall | framlög) (skv. Björgu Ólafsdóttur)
Fara í flakk Fara í leit

Heimagata 25 var reist af Kristjáni Jónssyni trésmiði árið 1929 fyrir Sigurð Ásgeir Gunnarsson og bjó hann ásamt konu sinni Sigríði Geirsdóttur og börnum þeirra Jóhönnu og Ólafi Ásgeiri í húsinu til ársins 1942.

Heimagata 25

Árið 1952 til 1953 bjó Ólafur Ásgeir ásamt konu sinni Kristínu M. Guðjónsdóttur og dóttur þeirra Björgu í húsinu.

Í húsinu við Heimagötu 25 bjuggu eftirtaldir íbúar þegar gaus: Ásdís Sveinsdóttir, Friðrik Guðjónsson, Sigrún Sigurðardóttir, Guðbjörg Ósk Ólafsdóttir, Sigurbjörg H. Pálsson, Elsa Skarphéðinsdóttir, Sveinn Jónsson, Kristín Þorleifsdóttir.

Í húsinu var starfandi skattstofa fyrir Vestmannaeyjar, þá starfaði sem skattstjóri Jón Eiríksson (skattstjóri). Fjölskylda hans bjó í húsinu, Bergþóra Guðjónsdóttir var eiginkona Jóns og þar bjuggu einnig börn þeirra: Þorbjörg Jónsdóttir (dóttir Jóns og Önnu Nikulásdóttur), Sigríður Halldóra Jónsdóttir, Guðjón Jónsson og Eiríkur Jónsson


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.