Vigdís Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vigdís Jóhannsdóttir húsfreyja, grunnskólakennari fæddist 3. október 1969.
Foreldrar hennar Jóhann Friðfinnsson kaupmaður, framkvæmdastjóri, forstöðumaður, f. 3. nóvember 1928, d. 13. september 2001, og kona hans Svanhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 16. apríl 1932, d. 20. september 2012.

Börn Svanhildar og Jóhanns:
1. Ástþór Jóhannsson, grafiskur hönnuður, leiðsögumaður, f. 21. júní 1955. Kona hans Katrín Ævarsdóttir.
2. Kristín Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi, safnvörður, f. 11. janúar 1960.
3. Jóhann Þorkell Jóhannsson, flugstjóri, f. 11. maí 1961. Kona hans Hildur Halldórsdóttir.
4. Davíð Jóhannsson, viðskiptafræðingur, ráðgjafi, f. 21. júní 1965. Kona hans Ingrid Kertelheim.
5. Vigdís Jóhannsdóttir kennari, f. 3. október 1969. Maður hennar Marteinn Jónasson.
Barn Jóhanns og Ernu Bjargar Vigfúsdóttur var:
6. Hrafnhildur Jóhannsdóttir, f. 8. ágúst 1947, d. 16. ágúst 2019.

Þau Marteinn Kristinn giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Rvk.

I. Maður Vigdísar er Marteinn Kristinn Jónasson, viðskipta- og hagfræðingur, lögfræðingur, verðandi lögmaður, f. 29. júní 1967. Foreldrar hans Jónas Hafsteinn Marteinsson, f. 15. október 1947, og Björg Breiðfjörð Marísdóttir, f. 17. júní 1948.
Barn þeirra:
1. Ólíver Marteinsson, f. 6. mars 2004.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.