Guðmundur Árnason (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. nóvember 2014 kl. 21:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2014 kl. 21:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Árnason vinnumaður frá Kirkjubæ fæddist 29. desember 1830 og lést 25. ágúst 1850, 19 ára.
Foreldrar hans voru Árni Þorbjörnsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1798, d. 1. ágúst 1843, og kona hans Margrét Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1793, d. 1. maí 1861

Guðmundur lifði einn 12 barna foreldra sinna til að ná fullorðinssaldri. Hin dóu ýmist á fyrstu dögum eða vikum lífsins.
Guðmundur var 9 ára með foreldrum sínum á Kirkjubæ 1840, 14 ára þar með ekkjunni móður sinni 1845. Hann var 19 ára vinnumaður á Gjábakka 1850, en hrapaði til bana á því ári.

I. Barnsmóðir hans var Valgerður Jónsdóttir frá Norðurgarði, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1896 í Vesturheimi.
Barnið var
1. Guðmundur Guðmundsson, f. 2. september 1850, d. 22. nóvember 1851 „af Barnaveikindum“.


Heimildir