Þóra Jónsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Ottahúsi. Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 11. september 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum og lést 14. mars 1894.

Móðir Þóru var Katrín Sigurðardóttir húsfreyja á Sitjanda í Eyvindarhólasókn 1816, ekkja hjá Þóru í Ottahúsi 1845, f. í ágúst 1779 á Rauðafelli þar, d. 25. júní 1856.

Faðir Þóru og maður Katrínar í Ottahúsi var Jón Þorleifsson bóndi á Sitjanda, f. 1735 í Pétursey í Mýrdal.
Faðir hans var Þorleifur bóndi í Pétursey 1735, f. 1705, Jónsson prests í Meðallandsþingum, f. 1673, d. 1707, Vigfússonar prests á Felli í Mýrdal, f. 1647, d. 1731, Ísleifssonar, og fyrstu konu sr. Vigfúsar, Kristínar húsfreyju, f. (1650), d. fyrir mt 1703, Magnúsdóttur.
Móðir Þorleifs í Pétursey og kona sr. Jóns var Gróa „yngri‟ húsfreyja, f. 1677, d. 1707 í bólunni, Jónsdóttir bónda á Flögu í Skaftártungu, f. 1635, d. 1708, Fabíanssonar, og konu Jóns á Flögu, Hallgerðar húsfreyju, f. 1645, d. um 1730, Sigmundsdóttur.
Móðir Jóns Þorleifssonar og fyrri kona Þorleifs í Pétursey var Ingibjörg húsfreyja, f. 1715, Jónsdóttir, (óvíst) bónda í Reynisholti og Neðri Dal u. Eyjafjöllum, f. 1688, Oddleifssonar, f. 1641, Runólfssonar, og konu Jóns Oddleifssonar, Vigdísar húsfreyju, f. 1672, Sveinsdóttur.

Þóra var systir Þórunnar Jónsdóttur húsfreyju á Fögruvöllum.

Þóra var vinnukona á Rauðafelli 1835, á prestsetrinu í Holti 1840.
Þau Bjarni fluttust 1843 frá Holti til Eyja ásamt Hugborgu systur Bjarna og Katrínu móður Þóru.
Hún var húsfreyja í Ottahúsi 1845 og 1850, í Stakkagerði 1860.
Þau Bjarni misstu báðar dættur sínar úr barnaveiki með þriggja daga millibili 1851.
Húsfreyja á Kirkjubæ var hún við Blíð-slysið 1869.
Hún var niðursetningur í Norðurbænum á Kirkjubæ 1870, í Jónshúsi 1880 og í Staðarbænum á Kirkjubæ 1890.

Maður Þóru, (9. nóvember 1843), var Bjarni Magnússon tómthúsmaður og sjómaður í Stakkagerði, f. 13. febrúar 1814 á Geirlandi á Síðu, fórst með Blíð 26. febrúar 1869.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Bjarnason, f. 1. júní 1842, d. 14. nóvember 1843.
2. Þóra Bjarnadóttir, f. 24. júlí 1844, d. 1. ágúst 1844 úr ginklofa.
3. Hugborg Bjarnadóttir, f. 29. nóvember 1846, d. 23. apríl 1851 úr barnaveiki.
4. Rannveig Bjarnadóttir, f. 1. febrúar 1848, d. 20. apríl 1851 úr barnaveiki.


Heimildir