Brynjólfur Brynjólfsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. mars 2014 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. mars 2014 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Brynjólfur Brynjólfsson''' bóndi á Vilborgarstöðum 1817, síðar bóndi í Miðskála u. Eyjafjöllum fæddist 21. febrúar 1791.<br> Foreldrar hans voru...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Brynjólfur Brynjólfsson bóndi á Vilborgarstöðum 1817, síðar bóndi í Miðskála u. Eyjafjöllum fæddist 21. febrúar 1791.
Foreldrar hans voru Brynjólfur Guðmundsson bóndi í Skipagerði í V-Landeyjum, f. 1734, d. 20. janúar 1803, og kona hans Sigríður Ögmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 1761, d. 21. nóvember 1839, prests Högnasonar.

Brynjólfur var með foreldrum sínum í Skipagerði 1801.
Hann var vinnumaður á Ofanleiti 1816, var bóndi á Vilborgarstöðum 1817, í Miðskála u. Eyjafjöllum 1835, í Efsta-Koti þar 1845.
1850 var hann ekkill, vinnumaður í Vatnsdal í Fljótshlíð og 1860 ekkill, húsmaður í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð.

Kona Brynjólfs var, (13. júlí 1817), Guðný Erlendsdóttir yngri, húsfreyja, f. 3. desember 1788 á Hrútafelli, d. 18. júní 1844.
Börn þeirra fæddust öll í Miðskála nema elsta barnið Guðríður, sem fæddist á Seljalandi:
1. Guðríður Brynjólfsdóttir, f. 2. ágúst 1818.
2. Pétur Brynjólfsson, f. 3. mars 1821, d. 22. nóvember 1906.
3. Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 28. apríl 1822, d. 4. júlí 1888 í Utah.
4. Guðný Brynjólfsdóttir, f. 21. apríl 1823.
5. Erlendur Brynjólfsson, f. 20. ágúst 1824.
6. Brynjólfur Brynjólfsson, f. 24. nóvember 1825, líklega sá, sem lést 27. maí 1866 í Eyjum.
7. Erlendur Brynjólfsson yngri, f. 2. september 1828.
8. Guðmundur Brynjólfsson, f. 25. maí 1831, d. 13. október 1893.
9. Einar Brynjólfsson, f. 5. september 1833.


Heimildir