Guðríður Jónsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 20:07 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. maí 2013 kl. 20:07 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðríður Jónsdóttir''' húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1810 á Vogsósum í Selvogi.<br> Faðir hennar var Jón prestur „mjói“ í Miðmörk, f. 9. á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Jónsdóttir húsfreyja í Norðurgarði fæddist 1810 á Vogsósum í Selvogi.
Faðir hennar var Jón prestur „mjói“ í Miðmörk, f. 9. ágúst 1772, d. 8. júní 1843, Jónsson bónda í Hraungerði í Álftaveri, f. 1739, Jónssonar bónda í Skálmarbæ í Álftaveri, f. 1710, Stígssonar, og ókunnrar móður Jóns í Hraungerði.
Móðir sr. Jóns og kona Jóns bónda í Hraungerði var Halldóra húsfreyja, f. 1742 í Þykkvabæjarsókn, Þorsteinsdóttir bónda í Skálmarbæ í Álftaveri og víðar, f. 1711, Nikulássonar, og ókunnrar móður Halldóru.
Móðir Guðríðar og barnsmóðir sr. Jóns var Kristín vinnukona hans, f. 1787 á Uxahrygg á Rangárvöllum, d. 19. september 1823, Benónýsdóttir, en hún varð síðar húsfreyja í Stakkavík í Selvogi, kona Jóns Hallvarðssonar bónda og hreppstjóra frá Gullberastöðum í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Kristín var síðari kona hans.
Móðir Kristínar Benónýsdóttur var Jarþrúður húsfreyja og húskona á Nýlendu í Hvalsnessókn, f. 1754, d. 3. apríl 1836, Ólafsdóttir á Steinkrossi á Rangárvöllum og víðar, f. 1723, d. í maí 1772, Runólfssonar, og konu Ólafs, Guðrúnar, f. 1720, d. 1. október 1782, Styrksdóttur norsks sjómanns (strandmanns), Danielssen.

Guðríður var niðursetningur í Götu í Selvogi 1816.
Hún var í Dölum 1835, húsfreyja á Kirkjubæ 1845 með Einari Jónssyni sjómanni, og eins 1850, en þá var Einar titlaður bóndi. Við manntal 1855 var Guðríður 45 ára, skilin við Einar, og var vinnukona hjá sr. Brynjólfi Jónssyni, sem þá var aðstoðarprestur með heimili í Nöjsomhed, og konu hans Ragnheiði Jónsdóttur.
Við manntal 1860 var hún 50 ára húsfreyja í Norðurgarði, gift Tíla Oddssyni 29 ára húsbónda. Þannig er ástand þeirra 1870, en nú var Tíli orðinn sjávarbóndi. Guðríður varð ekkja 16. júní 1883.

Guðríður var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Einar Jónsson á Kirkjubæ, f. 1815, d. 13. mars 1894.
Faðir Einars var Jón bóndi í Dölum 1816, f. 1779 í Efri-Vík í Landbroti, Helgason bónda í Efri-Vík 1778 og 1783, d. 1784, Guðmundssonar og konu Helga, Steinunnar húsfreyju, f. 1740, Eiríksdóttur bónda í Þykkvabæ, f. 1711, Órækjusonar.
Móðir Einars var Margrét húsfreyja í Dölum, f. 1787 á Kanastöðum í A-Landeyjum, d. 14. nóvember 1848, Guðmundsdóttir bónda á Bryggjum þar, f. 1765, d. 3. febrúar 1820 á Kirkjubæ, Ólafssonar, og fyrri konu Guðmundar, Ingibjargar Jónsdóttur, f. 1763.
II. Síðari maður Guðríðar var Tíli Oddsson sjávarbóndi í Norðurgarði. Hann drukknaði með Bjarna Ólafssyni bónda í Svaðkoti og skipshöfn 16. júní 1883.
Ekki virðist Guðríður hafa alið börn, sem komust upp.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.