Ástþór Matthíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ástþór Matthíasson fæddist 29. nóvember á Seyðisfirði og lést 7. desember 1970. Kona hans var Jóhanna Sigríður Gísladóttir. Ástþór fluttist til Vestmannaeyja eftir lögfræðipróf árið 1924. Hann vann meðal annars sem fulltrúi í verslun Gísla J. Johnsen sem var tengdafaðir hans. Hann var eigandi og framkvæmdarstjóri Fiskimjölsverksmiðju Vestmannaeyja. Ástþór sat í bæjarstjórn frá 1934-1946 og var forseti bæjarstjórnar allan þann tíma.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.