Hilmar Rósmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2005 kl. 13:28 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2005 kl. 13:28 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hilmar Rósmundsson, skipstjóri. Varaþingmaður af lista Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978. Tók sæti á Alþingi á haustþinginu það ár. Fæddur á Siglufirði 16. október 1925. Foreldrar Rósmundur Guðnason, Jónssonar bónda að Heiði í Sléttuhlíð og kona hans María Jóhannsdóttir, Þorsteinssonar í Stórugröf í Skagafirði. Kvæntur (24. október 1950) Rósu Snorradóttur (fædd 3. september 1927) Guðmundssonar. Gagnfræðipróf frá Gagnfræðiskólanum á Ísafirði og fiskimannapróf hið meira frá Stýrimannaskóla Íslands 1950. Skipstjóri á fiskiskipum frá 1955 og útgerðar maður frá 1959. Átti sæti í stjórn skipstjórafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum og Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja og einnig í stjórn Norðlendingafélagsins í Eyjum.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930