Gísli Þórðarson (Jaðri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. september 2015 kl. 14:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. september 2015 kl. 14:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gísli Þórðarson''' verkamaður fæddist 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð og lést 7. nóvember 1943.<br> Foreldrar hans voru Þórður Ívarsson bóndi, f. 1832...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Þórðarson verkamaður fæddist 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð og lést 7. nóvember 1943.
Foreldrar hans voru Þórður Ívarsson bóndi, f. 1832 og kona hana Sigríður Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 1839 Bræður Gísla í Eyjum voru
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius á Skansinum, f. 24. desember 1876, d. 1. apríl 1955.

Gísli var með fjölskyldu sinni í Ormskoti í Fljótshlíð í frumbernsku, var niðursetningur í Bjargarkoti þar 1890, vinnumaður í Miðkoti þar 1901.
Þau Guðleif giftu sig 1906, voru vinnufólk í Stóru-Mörk, eignuðust Harald 1906, Sigríði Stefaníu 1908 og Þuríði Guðlaugu 1909. Sigríður Stefanía ólst upp hjá ömmusystur sinni Sigríði Erlendsdóttur í Hamragörðum, en hin börnin voru tökubörn í Stóru-Mörk.
Þau voru í vinnumennsku í Stóru-Mörk u. V-Eyjafjöllum 1910. Börn þeirra Haraldur og Þuríður Guðlaug voru þar tökubörn, en Sigríður Stefanía var tökubarn í Hamragörðum hjá Sigríði ömmusystur sinni. Þar var hún einnig 1920, en síðar húsfreyja í Kópavogi.
Þau Guðleif fluttust frá Stóru-Mörk að Sandprýði 1911 með börnin Harald og Þuríði Guðlaugu. Í Sandprýði voru þau 1912, en 1913-1915 í Görðum. Þau bjuggu á Jaðri 1916-1917; eignuðust 4 börn í Eyjum, misstu síðasta barnið nýfætt, en Guðleif dó úr mislingum nokkrum dögum síðar.
Börnunum Haraldi og Soffíu var komið í fóstur í Múlakoti í Fljótshlíð og Þuríði Guðlaugu að Grjótá þar, Fanneyju að Miðkoti þar. Gísli var með Kristján Bello með sér á Litlu-Grund 1917, í austurbænum í Múlakoti 1920.
Hann lést 1943, jarðs. í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.