Jón Jónsson (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. febrúar 2015 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. febrúar 2015 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson


Jón Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist í Hlíð undir Eyjafjöllum 24. júlí 1881 og lézt 14. ágúst 1953 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Gunnhildur Gunnhildardóttir vinnukona á Þorvaldseyri, f. 1853 og Jón Hjartarson vinnumaður í Hlíð, f. 1838.

Jón fluttist til Eyja 1902 og stundaði sjómennsku.

Kona hans var Steinunn Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Þingeyri. Hann var síðari maður hennar.
Þau eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus, f. 1. júlí 1905, d. 1942.

Þau Steinunn bjuggu í Lambhaga 1920. Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu það Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.



Heimildir