Vöruhúsið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. nóvember 2005 kl. 15:53 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2005 kl. 15:53 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Vöruhúsið stendur við Skólaveg 1 og var byggt fyrir Einar Sigurðsson árið 1926. Þegar geymsluhúsið Marland var ennþá uppi var hægt að ganga í kjallara Vöruhússins í þar til gerðum göngum. Lengst af var verslað með matvöru í Vöruhúsinu; Bæjarbúðin, Verslun Guðjóns Scheving og Eyjakjör voru slíkar verslanir en einnig var raftækjaverslunin Kjarni þar til húsa.

Nú eru veitingahúsið Café María, á neðri hæð, og ölstofan Conero, á efri hæð, þar til húsa.