Einar Sveinn Jóhannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:44 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 10:44 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Sveinn Jóhannesson fæddist 13. apríl árið 1914 og lést 26. september 1994. Einar var skipstjóri á Skaftfellingi, VE-33 á árunum 1951—1954.

Hann byggði húsið að Faxastíg 45 og bjó þar til æviloka.

Loftur Guðmundsson samdi Formannavísur og hljóðar vísan um Einar á þá leið:

Einar að sækja unnarhót
ekki er á Svanhólm tregur,
glaður og reifur golu mót
glottir,— og þorstinn dregur.