Halldór Kolbeins

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 08:29 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 08:29 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Kolbeinsprestur Vestmannaeyinga frá 1945 til 1961. Hann var fæddur að Staðarbakka í Miðfirði. Foreldrar hans voru séra Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson á Staðarbakka og kona hans Þórey Bjarnadóttir.

Halldór varð stúdent í Reykjavík árið 1915 og lauk síðan cand. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 1920. Hann lauk einnig kennaraprófi sama ár.

Halldór fékk veitingu fyrir Flatey 1921, Stað í Súgandafirði 1925 og síðar Mælifelli árið 1941. Hann var settur til prestþjónustu í Vestmannaeyjum frá 1938 til 1939. Halldór fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli árið 1945 og gengdi því til ársins 1961.

Séra Halldór lést í Reykjavík árið 1964. Kona hans var Lára Ágústa Ólafsdóttir. Þau áttu saman sex börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.