Vilmundur Friðriksson (Hjarðarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:22 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. júní 2006 kl. 13:22 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vilmundur Friðriksson, Hjarðarholti, fæddist 19. september 1883 á Kalastöðum í Landeyjum. Vilmundur fór til sjóróðra í Vestmannaeyjum og árið 1908 kaupir hann Víking með fleiri mönnum og hafði formennsku á honum til ársins 1911 en þá kaupir hann Gideon og er formaður á honum til vertíðarloka ársins 1914. Síðar er Vilmundur með ýmsa báta til ársins 1923 en hann lést það ár.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.