„Einar J. Gíslason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Hinn 11. apríl 1964 kvæntist Einar eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigurlínu Jóhannsdóttur. Hún er fædd 11. júlí 1929. Dóttir þeirra er Guðný, fædd 15. mars 1965, og er húsmóðir í Englandi, gift Robert Pearson.
Hinn 11. apríl 1964 kvæntist Einar eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigurlínu Jóhannsdóttur. Hún er fædd 11. júlí 1929. Dóttir þeirra er Guðný, fædd 15. mars 1965, og er húsmóðir í Englandi, gift Robert Pearson.


Einar bjó í Vestmannaeyjum til 1970 og vann þar við vélgæslu, útgerð og sjómennsku með Óskari bróður sínum. Hann var fyrsti skoðunarmaður björgunarbáta í Vestmannaeyjum, vélaeftirlitsmaður og eftirlitsmaður Skipaskoðunar ríkisins. Þá var Einar verkstjóri á grafskipinu [[grafskipið|Vestmannaey]] og var á lóðsbátnum Létti. Einar gekk í hvítasunnusöfnuðinn sextán ára gamall, fór á biblíuskóla í Svíþjóð, var forstöðumaður Betelsafnaðarins í Vestmannaeyjum 1948-70 og forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík 1970-90.
Einar bjó í Vestmannaeyjum til 1970 og vann þar við vélgæslu, útgerð og sjómennsku með Óskari bróður sínum. Hann var fyrsti skoðunarmaður björgunarbáta í Vestmannaeyjum, vélaeftirlitsmaður og eftirlitsmaður Skipaskoðunar ríkisins. Þá var Einar verkstjóri á grafskipinu [[grafskipið|Vestmannaey]] og var á lóðsbátnum [[Léttir|Létti]]. Einar gekk í hvítasunnusöfnuðinn sextán ára gamall, fór á biblíuskóla í Svíþjóð, var forstöðumaður [[Hvítasunnukirkjan|Betelsafnaðarins]] í Vestmannaeyjum 1948-70 og forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík 1970-90.

Útgáfa síðunnar 28. júlí 2005 kl. 10:13

Einar Jóhannes Gíslason fæddist í Vestmannaeyjum 31. janúar 1923. Hann lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík hinn 14. maí árið 1998. Foreldrar Einars voru Gísli Jónsson, útvegsbóndi á Arnarhóli og Guðný Einarsdóttir. Systkini Einars voru: Guðný Svava, Salóme, Óskar Magnús, Hafsteinn Eyberg og Kristín Þyrí.

Hinn 23. maí 1948 kvæntist Einar fyrri konu sinni, Guðnýju Sigurmundsdóttur. Guðný fæddist 1. janúar 1926 og lést 6. október 1963. Börn þeirra urðu þrjú. Elst er Guðrún Margrét, fædd 16. desember 1949. Hún er meðferðarfulltrúi hjá SÁÁ og býr í Reykjavík og á hún tvö börn. Í miðjunni er Guðni, fæddur 23. febrúar 1953. Guðni er blaðamaður á Morgunblaðinu og býr á Kjalarnesi. Hann er kvæntur Guðfinnu Helgadóttur og eiga þau fjögur börn. Yngstur barna Einars og Guðnýjar er Sigurmundur Gísli, fæddur 26. september 1957. Sigurmundur rekur ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum ásamt fjölskyldu. Hann er kvæntur Unni Ólafsdóttur og eiga þau fimm börn.

Hinn 11. apríl 1964 kvæntist Einar eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigurlínu Jóhannsdóttur. Hún er fædd 11. júlí 1929. Dóttir þeirra er Guðný, fædd 15. mars 1965, og er húsmóðir í Englandi, gift Robert Pearson.

Einar bjó í Vestmannaeyjum til 1970 og vann þar við vélgæslu, útgerð og sjómennsku með Óskari bróður sínum. Hann var fyrsti skoðunarmaður björgunarbáta í Vestmannaeyjum, vélaeftirlitsmaður og eftirlitsmaður Skipaskoðunar ríkisins. Þá var Einar verkstjóri á grafskipinu Vestmannaey og var á lóðsbátnum Létti. Einar gekk í hvítasunnusöfnuðinn sextán ára gamall, fór á biblíuskóla í Svíþjóð, var forstöðumaður Betelsafnaðarins í Vestmannaeyjum 1948-70 og forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík 1970-90.