232
breytingar
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:blik1976_bygðasafn_bls175.jpg|thumb|250px|''Íbúðarhúsin á tveim Kirkjubæjarjörðunum.'']] | [[Mynd:blik1976_bygðasafn_bls175.jpg|thumb|250px|''Íbúðarhúsin á tveim Kirkjubæjarjörðunum.'']] | ||
<br> | |||
<center>Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja</center> | |||
<br> | |||
<center>Framhald</center> | |||
(Árin 1972 og 1973 birti ég í Bliki skýringar við 562 hluti í Byggðarsafni Vestmannaeyja. Eldgosið á Heimaey truflaði þetta starf mitt og færði það úr skorðum, svo að framhald á minjaskránni birtist ekki í Bliki 1974, sem var 31. árgangur ritsins. Hér birti ég framhaldið, skýringar við hluti nr. 563-989 og fylla þær þrjár arkir. Þá hef ég látið prenta 8 arkir af minjaskránni eða samtals 128 bls. Sé engin skýring við hlutinn, er ástæðan sú, að mér er ekki leyfilegt að tjá hana eða ég veit engin deili á því, hver hann hefur átt. | |||
(Þ. Þ. V.). | |||
<br> | |||
<center>7. kafli</center> | |||
<br>center>Úr og klukkur</center> | |||
* 563. Bakkaúr. Þetta gamla bakkaúr „''erfði''" Byggðarsafnið úr dánarbúi frú Margrétar Sigurþórsdóttur húsfr. á Garðstöðum (nr. 5) við Sjómannasund. Úr þetta var keypt á Eyrarbakka á fyrri öld og var lengi eign Sigurþórs bónda Ólafssonar á Garðstöðum á Rangárvöllum, föður frú Margrétar. Kristján Thorberg, matsveinn, fóstursonur frú Margrétar, og kona hans frú Lydia Einarsdóttir gáfu Byggðarsafninu úrið. | |||
* 564. Klukka. Þessa borðklukku áttu héraðslæknishjónin frú Anna og Halldór Gunnlaugsson. Héraðslæknir þessi starfaði hér í Eyjum við góðan orðstír í 18 ár (1906-1924). Hann drukknaði við Eiðið 16. des. 1924. Börn læknishjónanna gáfu Byggðarsafninu klukkuna. | |||
* 565. Klukka. Þessa klukku áttu hjónin á Gjábakka (nr. 8) við Bakkastíg, Jón kaupmaður Einarsson og frú Sesselja Ingimundardóttir. | |||
* 566. Klukka veggklukka. Þessa veggklukku áttu héraðslæknishjónin í Landlyst (1865-1905) Þorsteinn Jónsson og frú Matthildur Magnúsdóttir. Hjónin áttu klukku þessa um tugi ára. Þegar læknishjónin fluttu héðan árið 1905, gáfu þau hjónunum á Hjalla við Vestmannabraut (nr. 57) klukkuna, en þau voru þá frú Kristólína Bergsteinsdóttir og Sveinn Pálsson Scheving meðhjálpari. | |||
Einar Einarsson frá Norðurgarði eignaðist síðan klukkuna og flutti hana með sér til Reykjavíkur. Þegar hann féll frá, var hún send Byggðarsafninu samkvæmt beiðni hans. | |||
Upprunalega var annar kassi skrautlegri um klukkuverkið, en hann fór forgörðum veturinn 1918 í kulda | |||
{{Blik}} | {{Blik}} |
breytingar