„Björn Ívar Karlsson (læknir)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Hann giftist Sigríði Sigurjónsdóttir (dóttir Sigurjóns Bifreiðarstjóra í Vestmannaeyjum og Önnu Þorkelsdóttur) og áttu þau eitt barn saman. Seinna giftist hann Helgu Jónsdóttur (dóttur Jóns Guðmundssonar, skipstjóra og Rósu Guðmundsdóttur, konu hans) og eiga þau tvö börn.

[[Flokkur:Fólk]]
== Heimildir ==
*''Eyjar gegnum aldirnar'' Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930
 
[[Flokkur:Læknar]]
[[Flokkur:Læknar]]

Útgáfa síðunnar 24. júní 2005 kl. 11:22

Björn Ívar Karlsson, var sjúkrahúslæknir á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum þann 24. apríl 1943. Foreldrar hans eru Karl O. Björnsson, bakarameistari og kona hans Guðrún S. Sigfúsdóttir Scheving. Stúdent frá Menntaskólanum að Laugavatni 1963 og cand. med. frá Háskóla Íslands vorið 1970.

Honum var veitt almennt lækningaleyfi þann 20. des. 1972. Þá starfaði hann sem heilsugæslulæknir og aðstoðar læknir við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum mars 1970 til júní 1971. Hann var aðstoðarlæknir (intern) hjá Hurkley Medical Center í Flint (Michigan) í Bandaríkjunum júlí 1971 til júní 1972. Þá stundaði hann sérnám í almennum skurðlækningum frá júlí 1972 til september 1975. Hann var yfirlæknir á FSI október til desember 1975 og yfirlæknir við handlækningadeild sjúkrashússins í Vestmannaeyjum síðan 1975.

Hann giftist Sigríði Sigurjónsdóttir (dóttir Sigurjóns Bifreiðarstjóra í Vestmannaeyjum og Önnu Þorkelsdóttur) og áttu þau eitt barn saman. Seinna giftist hann Helgu Jónsdóttur (dóttur Jóns Guðmundssonar, skipstjóra og Rósu Guðmundsdóttur, konu hans) og eiga þau tvö börn.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930