„Þorsteinn Gíslason (Görðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Þorsteinn Gíslason, [[Garðar|Görðum]], fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá [[Eyjólfur Gíslason|Eyjólfi Gíslasyni]] bróður sínum á [[Garðar I|Garðari I]]. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á [[Garðar II|Garðari II]]. Eftir það var Þorsteinn með [[Sjöfn I]] og [[Sjöfn II]] sem voru hans eigin bátar.
Þorsteinn Gíslason, [[Garðar|Görðum]], fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá Eyjólfur Gíslason|Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á [[Garðar I|Garðari I]]. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á [[Garðar II|Garðari II]]. Eftir það var Þorsteinn með [[Sjöfn I]] og [[Sjöfn II]] sem voru hans eigin bátar.


[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:
[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:

Útgáfa síðunnar 13. nóvember 2007 kl. 08:06

Þorsteinn Gíslason, Görðum, fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá Eyjólfur Gíslason|Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á Garðari I. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á Garðari II. Eftir það var Þorsteinn með Sjöfn I og Sjöfn II sem voru hans eigin bátar.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:

Harðskiptinn við dimma dröfn
djarfur á þorskaleiðum,
Þorsteinn Gíslason á Sjöfn
sækir fast að veiðum.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Þorstein:

Garpur afla Görðum frá
geymir Steina heiti,
telja má í svæsnum sjá
Sjafnar kinnar bleyti.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Steina Gísla ég greini
gætinn í formanns sæti,
svikalaust sjós í kviku,
Sjöfn stýrir þétt úr höfnu.
Friðar lítt meiri miðin,
marinn þó velti fari,
dýrugga dyns úr mýri
dregur úr sjó ótregur.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.