„Dagsbrún“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Kirkjuvegur]]

Útgáfa síðunnar 26. júní 2007 kl. 09:58

Húsið Dagsbrún stóð við Kirkjuveg 8b. Það fór undir hraun í gosinu 1973. Árni J. Johnsen rak um nokkurra ára skeið á jarðhæðinni Blómaverslunina Happó, ásamt Ingibjörgu, dóttur sinni sem síðan tók alfarið við rekstri verslunarinnar og var hún eftir það kennd við hana. Á sjötta áratug síðustu aldar var húsið notað sem verbúð og fékk þá viðurnefnið Kórea en á þeim árum mun oft hafa verið þar róstusamt og þótti einhverjum minna á Kóreustríðið sem þá stóð sem hæst.