„Elva Ósk Ólafsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Elva Ósk fer með hlutverk Jóhönnu í framhaldsþáttunum Örnen sem Danmarks Radio framleiðir en þeir hafa verið sýndir á RÚV. Elva leikur þar Jóhönnu, systur aðalsöguhetjunnar og er búsett í húsinu [[Lukka|Lukku]] í Vestmannaeyjum. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og voru meðal annars tilnefndir til evrópsku Emmy- verðlaunanna.

[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Leikarar]]
[[Flokkur:Listamenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 20. júní 2007 kl. 16:55

Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona

Elva Ósk Ólafsdóttir er fædd 24. ágúst 1964. Hún fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp.

Elva Ósk lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1989. Fyrsta hlutverk hennar að loknu námi var Adela í Húsi Bernörðu Alba hjá Leikfélagi Akureyrar en þar lék hún einnig Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukkunni. Elva hefur auk þess leikið hlutverk í fjölmörgum leiksýningum, bæði í Borgarleikhúsinu og í Þjóðleikhúsinu og hlotið viðurkenningar fyrir.

Elva hefur einnig leikið í kvikmyndum og hlaut meðal annars Edduverðlaunin 2002 fyrir leik sinn í Hafinu. Elva lék einnig Ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu í kvikmyndinni Nýtt líf eftir Þráinn Bertelsson sem var að mestu tekin upp í Vestmannaeyjum.

Elva Ósk fer með hlutverk Jóhönnu í framhaldsþáttunum Örnen sem Danmarks Radio framleiðir en þeir hafa verið sýndir á RÚV. Elva leikur þar Jóhönnu, systur aðalsöguhetjunnar og er búsett í húsinu Lukku í Vestmannaeyjum. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og voru meðal annars tilnefndir til evrópsku Emmy- verðlaunanna.