„Mylluhóll hjá Vilborgarstöðum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(setti mynd og skýringar.)
(Lagfærði tengil.)
Lína 6: Lína 6:
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.<br>
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.<br>
Eftir stóð lautin í hólnum fram að [[Heimaeyjargosið|gosi]].<br>
Eftir stóð lautin í hólnum fram að [[Heimaeyjargosið|gosi]].<br>
Skýringar við mynd: Sér í austurhluta [[Vilborgarstaðir|Austari Vilborgarstaða (Gústubæ)]]. Til hægri er [[Brennihóll]], ([[Þerrihóll]]). Fjær sér á [[Mylluhóll|Mylluhól.]]
Skýringar við mynd: Sér í austurhluta [[Vilborgarstaðir|Austari Vilborgarstaða]], [[Gústubær|(Gústubæ)]]. Til hægri er [[Brennihóll]], ([[Þerrihóll]]). Fjær sér á [[Mylluhóll|Mylluhól.]]


{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 21. janúar 2007 kl. 20:49

Vilpa.

Mylluhóll eða Vindkvarnarhóll var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá Austari Vilborgarstöðum, (Austurbænum).
Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan Hraun, önnur í túni Stakkagerðis. Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi Garðsverzlunar, reist af Jens Benediktssen kaupmanni.
Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin Árni Einarsson hreppstjóri og þingmaður um hríð og Guðfinna Jónsdóttir Austmann, sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.
Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „draugur“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.
Eftir stóð lautin í hólnum fram að gosi.
Skýringar við mynd: Sér í austurhluta Austari Vilborgarstaða, (Gústubæ). Til hægri er Brennihóll, (Þerrihóll). Fjær sér á Mylluhól.


Heimildir