„Jóna Dóra Kristinsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
(Til móts við ritstjórn.)
Lína 11: Lína 11:


Heimildir:
Heimildir:
*Ljósmæður á Íslandi. Rvk 1984.
*''Upphaflegur höfundur Víglundur Þór Þorsteinsson.''
*Vestfirzkar ættir. Rvk 1968.
*''Ljósmæður á Íslandi''. Rvk 1984.
*Gils Guðmundsson: Frá yztu nesjum, vestfirzkir sagnaþættir V. Rvk 1949.
*''Vestfirzkar ættir''. Rvk 1968.
*Borgfirzkar æviskrár.
*Gils Guðmundsson: ''Frá yztu nesjum, vestfirzkir sagnaþættir'' V. Rvk 1949.
*Garður.is.
*''Borgfirzkar æviskrár''.
*Jóna Dóra Kristinsdóttir, pers.
*''Garður.is''.
*Þóra Magnúsdóttir, pers.
*Jóna Dóra Kristinsdóttir, viðtal.
*Þóra Magnúsdóttir, viðtal
[[Flokkur: Fólk]]
[[Flokkur: Fólk]]
[[Flokkur: Ljósmæður]]
[[Flokkur: Ljósmæður]]

Útgáfa síðunnar 13. nóvember 2006 kl. 11:18

Jóna Dóra Kristinsdóttir ljósmóðir fæddist í Vestmannaeyjum 25. sept. 1954.
Foreldrar: Jóhann Kristinn útgerðarmaður þar, f. í Eyjum 20. ágúst 1926, d. 4. okt. 2000, Páls Sigurgeirs útgerðarmanns og skipstjóra í Þingholti þar, f. 8. okt. 1900, d. 31. jan. 1951, Jónasar Péturs Jónssonar rafveitustjóra á Eskifirði og konu Jónasar Péturs, Margrétar Pálsdóttur. Móðir Kristins og kona Páls var Þórsteina húsfreyja í Þingholti, f. 22. jan. 1904, d. 23. nóv. 1991, Jóhanns á Brekku, f. 1877, d. 1931, Jóns Vigfúsar Vigfússonar (amma Jóns Vigfúsar var Guðfinna Guðmundsdóttir ljósmóðir) og konu Jóhanns á Brekku, Kristínar húsfreyju, f. 1878, d. 1926, Árnadóttur. Móðir Jónu Dóru er Þóra skurðhjúkrunarfræðingur og húsfreyja, f. 13. apríl 1930, Magnúsar bakarameistara og útgerðarmanns, f. 2. okt. 1898 í Rvk, d. 9. des. 1961, Bergs skipstjóra og útgerðarmanns Jónssonar og konu (9. sept. 1924) Magnúsar, Halldóru húsfreyju (Dóru Bergs) frá Bolungarvík, f. 7. sept. 1903, d. 12. júní 1942, Valdemars Samúelssonar frá Miðdalsgröf, f. 1882, d. 1961 og konu Valdimars, Hávarðínu Hávarðardóttur.
Hávarðína var systir Halldórs á Smáhömrum, ættföður Drífu Björnsdóttur ljósmóður. Þau voru bæði komin af Þuríði Þiðriksdóttur í Ögri, en hún var dóttir Þiðriks Ólafssonar í Geirshlíð í Flókadal í Borg., ættföður Guðnýjar Bjarnadóttur ljósmóður í Eyjum.
Jóna Dóra lauk verzlunarprófi við Verzlunarskóla Íslands 1973, ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 27. sept. 1980, hjúkrunarprófi við Hjúkrunarskóla Íslands 1985. Hún lauk prófi í uppeldis - og kennslufræði við Háskóla Íslands 1997.
Meðan á námi stóð vann hún sem ljósmóðir á Landspítalanum. Hún var ljósmóðir við Landspítalann frá jan. 1981 – sept. 1982; vann á læknastofu Hallgríms Magnússonar í nokkra mánuði 1988, var hjúkrunarforstjóri á Vogi 1989 – hausts 1995. Kennari við Fjölbrautarskólann í Breiðholti var hún frá jan. 1996 – 2002; hóf störf við Miðstöð mæðraverndar hjá Heilsugæzlunni í Reykjavík í ágúst 2001 og starfar þar nú.
Ljósmóðir í Eyjum var hún 1. júlí 1985 – 8. febr. 1988.
Barnsfaðir: Guðmundur Sigurgeirsson.
Barn: Kristinn Geir, f. 20. maí 1980.
Maki (19. júní 1999): Björgvin Þorsteinsson lögfræðingur í Reykjavík, f. 27. apríl 1953. Barn hans er Steina Rósa, f. 6. nóv. 1976.

Heimildir:

  • Upphaflegur höfundur Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ljósmæður á Íslandi. Rvk 1984.
  • Vestfirzkar ættir. Rvk 1968.
  • Gils Guðmundsson: Frá yztu nesjum, vestfirzkir sagnaþættir V. Rvk 1949.
  • Borgfirzkar æviskrár.
  • Garður.is.
  • Jóna Dóra Kristinsdóttir, viðtal.
  • Þóra Magnúsdóttir, viðtal