„Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
Börn þeirra Magnúsar Þórðar: [[Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir]] í Eyjum, f. 23. marz 1953; Magnús Rúnar rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 29. júlí 1956.     
Börn þeirra Magnúsar Þórðar: [[Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir]] í Eyjum, f. 23. marz 1953; Magnús Rúnar rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 29. júlí 1956.     


Heimildir:
{{Heimildir|
*Ljósmæður á Íslandi
*Ljósmæður á Íslandi
*Arnardalsætt.
*Arnardalsætt.
*Bergsætt I.433.
*Bergsætt I.433.
*Hver er maðurinn?
*Hver er maðurinn?.
*Kennaratal.
*Kennaratal.
*Garður.is.
*Garður.is.}}
[[Flokkur: Fólk]]
[[Flokkur: Fólk]]
[[Flokkur: Ljósmæður]]
[[Flokkur: Ljósmæður]]

Útgáfa síðunnar 19. október 2006 kl. 14:02

Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir. Guðrún fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 8. ágúst 1920 og lézt í Reykjavík 22. maí 1978.
Faðir hennar var Ólafur Guðmundur kennari, kaupmaður, bakari og hreppstjóri á Flateyri, f. 30. ágúst 1879, d. 7. maí 1948, Sigurðar formanns, útgerðarmanns, kaupmanns og símstöðvarstjóra á Hrauni í Hnífsdal og á Langeyri í Álftafirði, f. 1860, d. 1950, Þorvarðarsonar og barnsmóður Sigurðar, Elínar Jóhannesdóttur frá Blámýrum í Ögursveit við Djúp, síðar húsfreyju á Hríshóli í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu, f. 1854, d. 1920. Móðir Guðrúnar og kona (25. marz 1917) Ólafs Guðmundar var Valgerður húsfreyja, f. 26. sept. 1893, d. 1. nóv. 1968, Guðmundar bónda að Bakkaseli í Ögursveit, f. 1849, Hafliðasonar og barnsmóður hans, Guðrúnar Sigurðardóttur.
Guðrún lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. sept. 1947, var áður í Húsmæðraskólanum að Laugalandi í Eyjafirði 1944-1945.
Hún var ljósmóðir við Landspítalann 1947-30. sept 1949, er hún varð ljósmóðir í Eyjum og því starfi gegndi hún til dánardægurs 1978.
Maki (1. des. 1951): Magnús Þórður bifreiðastjóri, f. 7. maí 1921, d. 17. júlí 1986, Ágústsson á Aðalbóli í Eyjum Þórðarsonar og konu Ágústs, Viktoríu Guðmundsdóttur húsfreyju.
Börn þeirra Magnúsar Þórðar: Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir í Eyjum, f. 23. marz 1953; Magnús Rúnar rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 29. júlí 1956.


Heimildir

  • Ljósmæður á Íslandi
  • Arnardalsætt.
  • Bergsætt I.433.
  • Hver er maðurinn?.
  • Kennaratal.
  • Garður.is.