„Sigurður Þórðarson (Heiðardal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|150px|''Sigurður Þórðarson. '''Sigurður Þórðarson''' frá Árbæ í Holtum, bifreiðastjóri fæddist þar 28. septembe...)
 
m (Verndaði „Sigurður Þórðarson (Heiðardal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. desember 2021 kl. 14:08

Sigurður Þórðarson.

Sigurður Þórðarson frá Árbæ í Holtum, bifreiðastjóri fæddist þar 28. september 1895 og lést 21. mars 1951.
Foreldrar hans voru Þórður Sigurðsson, þá ráðsmaður í Árbæ, síðar sjómaður, verkamaður, f. 28. ágúst 1859 í Háfi í Holtum, d. 10. júní 1941, og Guðný Jónsdóttir frá Efra-Hvoli, þá vinnukona í Árbæ, f. 22. apríl 1859, d. 19. nóvember 1905.

Sigurður var sex ára fósturbarn á Kaldbak í Keldnasókn á Rangárvöllum 1901, vikadrengur þar 1910, hjú á Ytri-Hól í V.-Landeyjum 1920.
Hann flutti til Eyja 1923, var leigjandi, bifreiðastjóri í Heiðardal við Hásteinsveg 2 1930, bifreiðastjóri í Jómsborg 1934.
Sigurður flutti til Keflavíkur, bjó síðast á Kirkjuvegi 9a þar.
Hann lést 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.