„Elín Sigrún Jóhannesdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Elín Sigrún Jóhannesdóttir''' húsfreyja í Reykjavík og Garðabæ fæddist 11. maí 1934.<br> Foreldrar hennar voru Jóhannes Sigmarsson bóndi, f. 19. maí 1916, d. 13. jún...)
 
m (Verndaði „Elín Sigrún Jóhannesdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 7. júní 2021 kl. 16:33

Elín Sigrún Jóhannesdóttir húsfreyja í Reykjavík og Garðabæ fæddist 11. maí 1934.
Foreldrar hennar voru Jóhannes Sigmarsson bóndi, f. 19. maí 1916, d. 13. júní 1973 og barnsmóðir hans Sigurlaug Auður Eggertsdóttir, síðar húsfreyja í Eyjum og Reykjavík, f. 9. júní 1914, d. 23. júlí 2012.
Fósturfaðir Elínar var maður Sigurlaugar, Bogi Óskar Sigurðsson frá Garðbæ, kvikmyndasýningastjóri, f. 20. desember 1910, d. 14. mars 1980.

Elín var með móður sinni og síðan henni og Boga Óskari og fluttist með þeim til Keflavíkur 1941 og síðan til Reykjavíkur.
Þau Páll giftu sig 1960, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Reykjavík og nú í Garðabæ.

I. Maður Elínar Sigrúnar, (13. maí 1960), er Páll Breiðdal Samúelsson frá Siglufirði, fyrrum bifreiðasali, umboðsmaður Toyota bifreiðaverksmiðjanna, f. þar 10. september 1929. Foreldrar hans voru Samúel Ólafsson verkamaður, síðar verkstjóri og síldarsaltandi á Siglufirði, f. 3. apríl 1887, d. 31. mars 1935, og kona hans Einarsína Kristbjörg Pálsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1891, d. 10. febrúar 1941.
Börn þeirra:
1. Bogi Óskar Pálsson framkvæmdastjóri, býr í Bandaríkjunum, f. 6. desember 1962. Kona hans Sólveig Dóra Magnúsdóttir.
2. Sigurlaug Pálsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. desember 1974. Maður hennar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.