„Ritverk Árna Árnasonar/Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
3. Andvana drengur, f. 11. febrúar 1925.

3. Andvana drengur, f. 11. febrúar 1925.

4. [[Marta Sveinbjörnsdóttir]], f. 14. nóvember 1927, d. 2. janúar 2003.

4. [[Marta Sveinbjörnsdóttir]], f. 14. nóvember 1927, d. 2. janúar 2003.

5. [[Svava Sveinbjörnsdóttir|Svava]], f. 3. janúar 1934 í [[Hljómskálinn|Hljómskálanum, Hvítingavegi 10]].
5. [[Svava Sveinbjörnsdóttir|Svava]], f. 3. janúar 1934 í [[Hljómskálinn|Hljómskálanum, Hvítingavegi 10]].

6. [[Jenný Sveinbjörnsdóttir]], f. 2. júlí 1935, d. 29. apríl 2004.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Útgáfa síðunnar 29. maí 2021 kl. 13:53

Kynning.

Sveinbjörn Einarsson trésmiður frá Þorlaugargerði vestra fæddist 12. júní 1890 og lést 13. ágúst 1984.
Foreldrar hans voru Einar bóndi Sveinsson bóndi í Þorlaugargerði, f. í Sólheimahjáleigu í Mýrdal 13. maí 1855 og kona hans Guðríður Helgadóttir húsfreyja frá Gerði, f. í Eyjum 31. október 1854, d. 14. júlí 1922.

Kona Sveinbjörns var Guðbjörg Ingvarsdóttir, f. að Hellnahóli undir Eyjafjöllum 28. júní 1897, d. 2. september 1987.
Börn Sveinbjörns og Guðbjargar hér:
1. Fanney, f. 12. september 1918, d. 29. desember 1990.
2. Guðmundur Ingvi, f. 30. janúar 1922, d. 10. ágúst 1943.
3. Andvana drengur, f. 11. febrúar 1925.
4. Marta Sveinbjörnsdóttir, f. 14. nóvember 1927, d. 2. janúar 2003.
5. Svava, f. 3. janúar 1934 í Hljómskálanum, Hvítingavegi 10.
6. Jenný Sveinbjörnsdóttir, f. 2. júlí 1935, d. 29. apríl 2004.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sveinbjörn er allhár vexti, dökkhærður og samsvarar sér vel. Fríður og prúðmannlegur í allri framkomu, kátur og léttur í lund, brosmildur og sviphýr og ágætur félagi.
Hann var afbragðs góður fjallamaður, bæði laus og bundinn, veiðimaður ágætur, iðinn og kappsfullur.
Stundum virtist Sveinbjörn vera feiminn eða halda sig til baka, en lítt var það til baga eða mjög áberandi, þótt kunnugir yrðu þessa varir. Hann fór á besta aldri úr Eyjum og hætti þá fuglaveiði og bjargferðum. Er nú við Hlíðardalsskóla í Ölfusi og hefir unnið þar við byggingu skólans, því að hann var smiður að iðn.
Sveinbjörn var víða um eyjar í bjargferðum, einn af afreksmönnum Elliðaeyjar og Bjarnareyjar, sem gerði sitt til að auka aflahróður þeirra eyja, er keppnin var mest milli austureyja og suðureyjanna. Sveinbjörn var afbragðs sigamaður, seig oft skemmtisig fyrir almenning og þótti takast vel.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)

ctr

Sveinbjörn Einarsson með fjölskyldu sinni.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.