„Gunnar Jónsson (Miðey)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:


Gunnar var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja árin 1971 og 1973.
Gunnar var [[Aflakóngar|aflakóngur]] Vestmannaeyja árin 1971 og 1973.
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Aflakóngar]]

Útgáfa síðunnar 13. júlí 2006 kl. 14:44

Gunnar Jónsson er fæddur í Vestmannaeyjum 18. janúar 1940. Hann er sonur hjónanna Rósu Guðmundsdóttur frá Málmey og Jóns Guðmundssonar frá Goðalandi sem var mikill aflamaður á sinni tíð.

Gunnar byrjaði til sjós 1958 með föður sínum á Ver og lauk prófi frá stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1961. Gunnar hóf formennsku á Ver á humarveiðum árið 1963. Á þessum árum var hann á haustsíldveiðum með Kristni Pálssyni á Berg. Hann var á gamla Berg þegar báturinn fórst út af Snæfellsnesi haustið 1962 Gunnar var stýrimaður á nýjum Bergi 1963. Árið 1965 réðst hann á Ísleif IV með Guðmari heitnum Tómassyni og Gísla Jónassyni. Ísleifur IV var með mesta aflaverðmæti Vestmannaeyjabáta það ár. Gunnar varð skipsstjóri á Ísleifi IV 1966 og tók við Ísleifi VE 63 árið 1967 og hefur verið með hann síðan og fiskað vel.Hann er einn af færustu nótaveiðimönnum í dag.

Gunnar var aflakóngur Vestmannaeyja árin 1971 og 1973.