„Salbjörg Bjarnadóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Salbjörg Bjarnadóttir''' húsfreyja á Bergi fæddist 14. maí 1899 á Grund í Grundarfirði. <br> Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason bóndi og smiður á Hellnafelli, f...)
 
m (Verndaði „Salbjörg Bjarnadóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. febrúar 2016 kl. 14:16

Salbjörg Bjarnadóttir húsfreyja á Bergi fæddist 14. maí 1899 á Grund í Grundarfirði.
Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason bóndi og smiður á Hellnafelli, f. 16. nóvember 1863, d. 13. júlí 1910, og kona hans Þorbjörg Stefanía Jakobsdóttir húsfreyja, f. 30. september 1878. d. 19. janúar 1947.

Salbjörg var með foreldrum sínum á Hellnafelli á Snæfellsnesi 1901 og 1910, var vinnukona í húsi Halldórs Kristinssonar í Hólshreppi í N-Ísafjarðarsýslu 1920.
Hún kom til Eyja 1929 og bjó með Haraldi Jónssyni á Bergi 1930, en finnst ekki síðan.

Sambýlismaður Salbjargar var Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, d. 20. febrúar 1962.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.