„Ásmundur Friðriksson (Löndum)“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
'''Ásmundur Friðriksson''' fæddist 31. ágúst 1909 og lést 17. nóvember 1963. Ásmundur var sonur [[Friðrik Svipmundsson|Friðriks Svipmundssonar]] og [[Elín Þorsteinsdóttir|Elínar Þorsteinsdóttur]]. Þau bjuggu nær allan sinn búskap að [[Lönd]]um í Vestmannaeyjum. Árið 1934 kvæntist Ásmundur fyrri konu sinni Elísu Pálsdóttur og eignuðust þau tvö börn, [[Friðrik Ásmundsson|Friðrik]] og [[Elínu Hólmfríður Ásmundsdóttir|Elínu Hólmfríði]]. Hún lést árið 1945. Síðari kona Ásmundar var [[Þórhalla Friðriksdóttir]] og eignuðust þau tvö börn.


Ásmundur fór að loknu barnaskólanámi í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist með góðri einkunn. Eftir það fór hann á sjóinn og var meðal annars á skipstjóri á [[Friðþjófur|Friðþjófi]], [[Elliðaey (bátur)|Elliðaey]], [[Sjöstjarnan|Sjöstjörnunni]] og [[Keflvíkingur|Keflvíking]].
Eftir að hann kom í land þá gerðist hann forstjóri Hraðfrystistöðvar Keflavíkur og stofnaði síðar eigið fyrirtæki, Söltun hf. Ásmundur lést á heimili sínu í Keflavík, aðeins 54 ára gamall.
[[Loftur Guðmundsson]] samdi formannsvísu um Ásmund:
: ''Ásmundur frá öllum ber''
: ''orðstír gætni og dáða''
: ''á Sjöstjörnunni um votan ver''
: ''völd hans gæfu ráða.''
[[Óskar Kárason]] samdi einnig formannavísu um Ásmund:
:''Bylgjur þegar brýtur fley
:''brims í sköflum þöndum,
:''heppinn siglir Elliðaey
:''Ásmundur á Löndum.
{{Heimildir|
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
* G.S.'' Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1964.}}
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Landagötu]]