„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Á fiskimarkaði í Bretlandi“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
Áður en ég hef frásögn mína af fiskimarkaðnum ætla ég að minnast lítillega á borgina sjálfa.

Íbúar Hull eru um 300.000 og byggja flestir afkomu sína á verzlun og fiskveiðum. Þaðan er gerður út fjöldinn allur af togurum, sem þeir eru alltaf að stækka og endurnýja. Fyrstu kynni sjómannsins af borginni eru óneitanlega ekki glæsileg, en þegar komið er upp úr hafnarhverfunum, þá er þetta mesti myndarbær, fallegar götur með trjágróðri til beggja handa, stórir og fallegir skrúðgarðar, þar sem fólk getur sólað sig og leikið eftir eigin geðþótta. Í görðum þessum eru t. d. tennisvellir, sundlaugar, krikketvellir o. m. fl.

[[Mynd:Boðið í fisk í Grimsby.png|500px|center]]
Snúum okkur þá að fiskmarkaðnum. Löndun úr togurum og bátum hefst um miðnætti og lýkur kl. 6—7 á morgnana. Ekki er hægt að segja, að verkamenn þeir, sem landa fiski úr skipum í Hull, hafi látið glepjast af tækni nútímans, því að öllum fiskinum er skipað upp í tágakörfum. Þykist ég vita, að svo hafi verið frá fyrstu tíð. Ekki er ég samt viss um, að tækni nútímans myndi standa þeim snúning, því að leikni þessara manna er undraverð, og landa þeir úr fullfermdum togara á 6—7 klst. Hvolfa þeir úr körfunum í stampa (kit), sem eru vigtaðir jafnóðum á bryggjunni, eftir því sem fiskinum er landað úr skipinu. Hvert „kit“ tekur 63,5 kg (10 stone). Um kl. 6.30 fara uppboðshaldarar og kaupmenn að streyma á markaðinn og fá þeir allir lista með nöfnum skipanna, hvar þau hafi verið á veiðum og aflamagn hvers um sig. Síðan ganga þessir menn um allan markaðinn, skoða fiskinn og telja kassana og stampana (kittin) nákvæmlega, því að uppgefið aflamagn á listunum eru ágizkanir skipstjóranna.

Eftir að fiskkaupmenn hafa skoðað og metið fiskinn, koma þeir saman á smáskrifstofu, sem hvert fyrirtæki hefur á markaðnum og ræða þar væntanleg fiskkaup, verð og magn. Kl. 7:30 heyrast köll mikil — uppboðið er hafið — og hraða menn sér á eftir uppboðshaldaranum, hlaupa jafnvel á  stömpunum.

Fannst mér ótrúleg leikni þeirra að stikla á þeim. Ég reyndi þetta einu sinni og þóttist góður að sleppa óbrotinn úr þeirri ferð. Allir eru á leðurklossum með trésólum og veljárnaðir. Sögðu þeir mér að slíkur fótabúnaður reyndist bezt á hálum gólfum og ekki síður á stömpunum.

[[Mynd:Landað úr togara.png|300px|thumb|Landað úr togara.]]
[[Mynd:Frá markaði í Hull.png|500px|thumb|center|Frá markaði í Hull. Það er handagangur í öskunni og hlaupa kaupmenn á stömpunum (kittunum).]]
Hjá stærri fyrirtækjum annast margir menn kaupin, einn kaupir stórþorsk, annar smáan.

þriðji ýsu o. s. frv., síðan koma hjálparmenn. 2—3 með hverjum kaupmanni. Starf hjálparmanna er að telja „kittin“, sem keypt hafa verið og merkja þau viðkomandi fyrirtæki. Fjöldi þessara rnanna skiptir hundruðum með öllu fylgdarliði. Uppboðshaldarinn byrjar á einhverri hámarkstölu, og heldur síðan niður á við og þylur hann þetta með slíkum hraða, að illmögulegt er fyrir útlending að skilja orðaflauminn.