„Helga Þorsteinsdóttir (París)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Helga Þorsteinsdóttir (París)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
Hún var vinnukona í [[Gerði-stóra|Stóra-Gerði]] 1845, vinnukona í [[París]] 1860.  
Hún var vinnukona í [[Gerði-stóra|Stóra-Gerði]] 1845, vinnukona í [[París]] 1860.  


Barn Helgu með Þorkeli var [[Jón Þorkelsson (Þorkelshjalli)|Jón Þorkelsson]] sjómaður frá Þorkelshjalli, f. 1833, fórst með [[Helga, þilskip|þilskipinu Helgu]] 1867.<br>  
I. Barnsfaðir Helgu var [[Þorkell Einarsson (Þorkelshjalli)|Þorkell Einarsson]] tómthúsmaður.<br>
Barn þeirra var<br>
1. [[Jón Þorkelsson (Þorkelshjalli)|Jón Þorkelsson]] sjómaður frá Þorkelshjalli, f. 1833, fórst með [[Helga, þilskip|þilskipinu Helgu]] 1867.<br>  
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Útgáfa síðunnar 14. maí 2014 kl. 17:19

Helga Þorsteinsdóttir vinnukona fæddist f. 26. október 1805 á Leðri í Selvogi og lést 24. desember 1869.

Faðir hennar var Þorsteinn bóndi í Leðri í Selvogi, f. 1773, d. 28. ágúst 1811, Björnsson bónda á Brekkum á Rangárvöllum, f. 1748, d. 27. ágúst 1832, Ólafssonar bónda á Brekkum 1745, drukknaði 1756, Diðrikssonar, og konu Ólafs, Herborgar húsfreyju, f. 1717, d. 25. ágúst 1791, Jónsdóttur, Móðir Þorsteins og kona Björns á Brekkum var Helga húsfreyja, f. 1736, d. 19. ágúst 1819, Magnúsdóttir bónda á Grjótlæk í Stokkseyrar hreppi, f. 1695, Þorsteinssonar, og konu Magnúsar, Önnu húsfeyju, f. 1706, Brandsdóttur (Hluta-Brands) bónda í Auðsholti í Ölfusi.

Móðir Helgu var Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja á Leðri, f. 1774.

Helga var hjá föðurforeldrum sínum í Tungu á Rangárvöllum 1816. Hún var í fóstri við fermingu 1820 hjá Jóni Einarssyni og Þorlaugu Illugadóttur á Vogsósum.
Helga var vinnukona með son sinn, tökubarnið Jón Þorkelsson, hjá sér á Breiðabólstað 1835, vinnukona á Álfhólum í V-Landeyjum 1840.
Hún var vinnukona í Stóra-Gerði 1845, vinnukona í París 1860.

I. Barnsfaðir Helgu var Þorkell Einarsson tómthúsmaður.
Barn þeirra var
1. Jón Þorkelsson sjómaður frá Þorkelshjalli, f. 1833, fórst með þilskipinu Helgu 1867.


Heimildir