„Undurfagra ævintýr“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 24: Lína 24:
::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]].
::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]].
::Texti: [[Árni úr Eyjum]].
::Texti: [[Árni úr Eyjum]].
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]]

Núverandi breyting frá og með 14. júní 2006 kl. 08:24

Þjóðhátíðarlag
1933 1937 1938

Lagið Undurfagra ævintýr var þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 1937 og má með sanni segja að það hafi lifað áfram í Vestmannaeyjum því það er varla mannsbarn í Eyjum sem kannast ekki við þetta lag.

Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð
um þig syngur æskan hýr
öll sín bestu ljóð.
Ljósin kvikna, brennur bál,
bjarma slær á grund.
Enn þá fagnar sér hver sál
sælum endurfund.
Glitrandi vín og víf
veita mér stundarfrið;
hlægjandi ljúfa líf,
ljáðu mér ennþá bið.
Undurfagra ævintýr,
ágústnóttin hljóð
um þig ljómar ljúf og hýr
lífsins töfraglóð.
Lag: Oddgeir Kristjánsson.
Texti: Árni úr Eyjum.